Færsluflokkur: Bloggar

.leikurinn.

...er á Eurosport og DR1 fyrir þá sem eru erlendis. 

En mikið helvíti er þulurinn á vellinum sjálfum óþolandi með þennan þrælammríska hreim og pungsvitarokk sem yfirgnæfir allt annað!


mbl.is Ísland fór hamförum gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.æææjjjj en fallegt.

Hér er önnur hugmynd, Goggi minn.  Sleppa stríðum og spila bara golf áfram með góðri samvisku!

mbl.is Hætti í golfi vegna Íraksstríðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.áfram ír.

Eins og mig, sem Liverpool-manni, langar mikið að tjá mig eitthvað um þetta eða drulla yfir erkifjendurna þá er nú mest lítið að segja.  Menn væntanlega uppskera eins og þeir sá... survival of the fittest, gerum bara betur næst og þar fram eftir götunum!  Fleh.  Svo eru Milan og Barca ekkert að gera sérstaklega góða hluti heldur... áfram ÍR! Tounge

mbl.is Manchester United er enskur meistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.gatwick í vatnsmýrina!.

Óla borgó ætti nú ekki að verða skotaskuld úr því að rífa upp tékkheftið enn á ný og kaupa sér eins og eitt stykki alþjóðaflugvöll til að skella niður í miðborgina!  Bæði myndi það draga athyglina frá djammlátum og svo væri hægt að nota þoturnar til að blása burtu sígarettureyk, rusli og kofarústum á haf út.  Góðar stundir.

mbl.is Gæti þurft að selja Gatwick
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.til lukku.

Og ekki seinna vænna, það gat á tíðum verið frekar pirrandi að bíða eftir efni hér þó svo að það færi um mann nostalgíu-tilfinning í hægaganginum sem minnti einna helst á þá gömlu góðu daga á netinu. Tounge

mbl.is Bandbreidd mbl.is fimmfölduð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.fréttablaðið mælist 100% á þessu heimili.

Ek óska þessum 50% sem lesa 24 stundir til lukku með að fá blaðið inn um sína lúgu.  Sjálfur hef ég einungis séð þessu blaði bregða fyrir í könnunum sem þessum því ekki virðist finnast blaðberi sem orkar að ganga upp stiga.  Og heyri ég það mjög víða að fólk fær þetta blað ekki reglulega og virðist þá ekki nokkru máli skipta hvar innan höfuðborgarsvæðisins það býr.  Aftur á móti klikkar það því miður  aldrei að mér berst ruslafötufóðrið fasteignablað Mbl. hvurn einasta mánudag sem og allir aðrir ruslsneplar sem mögulegt er að fá.  Já fussum svei og ullabjakk!

mbl.is Lestur á 24 stundum heldur áfram að aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.afsakaðu mig á meðan ég æli.


mbl.is Bleikt og fjólublátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.atvinna í boði.

Eftirsóknarvert og lifandi starf við öryggisvörslu í boði í verslun sem er í göngufæri við helstu perlur borgarinnar.  Frítt fæði og heilsugæsla.  Áhugasamir hafi samband við vaktstjóra í herbergi 103 á gjörgæslu Landspítala.

mbl.is Réðist á öryggisvörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.eftirlýstir.

Lýst er eftir glaumgosum sem liggja í leti.
mbl.is Rændu Playboy-púðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.good times.

Mér er það mikið tilhlökkunarefni að hinn stórskemmtilegi rauðhaus Conan taki við af hinum sérlega ófyndna Leno, þá loxins verður máski horfandi á þáttinn.  Eins og staðan er núna horfir maður máski ef "Headlines" eða Ross "the intern" eru en annars þá skiptir maður bara um stöð eða fer að gera eitthvað annað þar sem ég næ ekki þætti Conan O'Brien.  Fróðlegt verður líka að sjá hvurnig Fallon mun standa sig því ekki er öllum fyndnum mönnum gefið að vera skemmtilegir þáttastjórnendur, sbr. Þorsteinn Guðmundsson sem ég þó álít einhvern fyndnasta mann Íslandssögunnar hvorki meira né minna!

mbl.is Fallon tekur við af Conan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband