Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

.kreppa schmeppa!.

Menn halda vart vatni yfir þessari svakalegu kreppu og gjaldþrotunum í kjölfar hennar.  Ég hef það fyrir víst að öll þessi fyrirtæki, Leikbær, Mest, Hans Petersen-Farsímalagerinn og Ræsir hafi verið verulega illa stödd, illa rekin og nánast í gjörgæslu löngu fyrir þessa svokölluðu kreppu.  Það þurfti því ekki mikinn samdrátt til að koma þessum greyjum á vonarvöl.  Það er bara vonandi að menn læri af reynslunni og sníði sér stakk eftir vexti í stað þess að miða alla sína uppbyggingu við endalaust góðæri og bestu mögulegu stöðu. 

Það verður fróðlegt að sjá hvað verður úr þegar allar þessar góðærisverslunarmiðstöðvar opna núna bráðlega.  Sé ekki annað en að það þýði bara "survival of the fittest"... sem aftur á móti þýðir svo frekari fákeppni og nauðgun neytenda á íslenskum markaði.  Good times!

Ég segi bara aftur á móti eins og einhver ágætur fýr sagði, ég tók ekki þátt í neinu góðæri svo mér dettur ekki í hug að fara að taka þátt í einhverri kreppu!


mbl.is Leikfangakeðja úr sögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.stórir fiskar í lítilli tjörn.

Hefur ferðum fyrir viðskiptavini bara verið fækkað?  Sem þýðir þá væntanlega að stjórnendur bankans (og uppáhaldsviðskiptavinirnir) fá enn að stunda sína veiði á kostnað hins almenna viðskiptavinar eins og ekkert hafi í skorist?  Oh well, skítt með það... það má þá alltaf segja upp fleiri gjaldkerum eða skella einhverju sneddí þjónustugjaldi á.  Pennagjald gæti verið þjóðráð þar sem pennar hverfa ósjaldan úr bönkunum, jafnvel slitgjald vegna slits á gólfum, hurðum o.fl. nú eða bara gjaldsgjald vegna kostnaðar við að innheimta gjöld! Grin

mbl.is Stórlaxar Glitnis hætta við laxveiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.hux.

Mér skilst að bófar þessir séu ekki að taka gríðarlegar upphæðir af hverju korti heldur smærri af mörgum.  Það verður seint komist alveg fyrir svona lagað en það er vissulega erfiðara fyrir menn að athafna sig lengi þar sem hraðbankarnir eru útivið á fjölförnum stöðum.  Þar sem því verður ekki við komið og hraðbankarnir eru inni við þá mætti t.d. tengja bankann við hurð og/eða skynjara sem gerði það að verkum að eftir notkun hvers korts yrði að tæma staðinn fyrir notkun næsta korts, þannig væri nú ansi pirrandi til lengdar að ætla að brúka nokkur kort í röð og menn vektu frekar athygli með rápinu.  Bara hugmynd.

mbl.is Miklu fé stolið úr hraðbönkum á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband