Færsluflokkur: Íþróttir

.fussss.

Lið verða nú ekki stórveldi þó einhverjir millaplebbar fari að leika sér í Football Manager með alvöru lið. Það er nú lágmark að menn vinni einhverja titla fyrst og komi sér upp titlasögu... mörgum finnst ekki einu sinni Chelsea geta flokkast sem stórveldi!  Cool  

En annars þá held ég að það sé klárlega kominn tími á launaþak eða annað slíkt í boltanum sem heftir svona fíflaskap og jafnar aðeins samkeppnina.  Það er nefnilega mun skemmtilegra að sjá hæfileika blómstra frekar en að einhverjir lúðar í pissukeppni geti keypt sér titla.  Nema auðvitað að einhver millinn taki ÍR undir sinn verndarvæng! Wink


mbl.is Al-Fahim ætlar sér stóra hluti hjá City
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.oooohhhhh!.

Mig dauðlangar að vera á einhverjum af þessum stöðum í fyrramálið!  Rétt eins og mig dauðlangaði að vera í Smáralindinni að horfa á undanúrslitaleikinn.  Málið er bara að einhverra hluta vegna verð ég alveg hrikalega hjátrúarfullur þegar kemur að íþróttum og ég tala nú ekki um þegar vel gengur og mikið er undir eins og nú.  Og ég sem er hversdagslega alls ekki neitt hjátrúarfullur og storka frekar örlögunum en hitt!  Af hverju ætli það sé þá að ég hreinlega þori ekki annað en að horfa á leikina uppi í rúmi á náttbuxunum eftir fyrsta sigurleikinn?!  Svo þegar kemur að vítum þá tek ég oftar en ekki Óla Stef. á þetta og reyni að myndskreyta í huganum ýmist glæsta markvörslu ellegar öruggt mark á milli þess sem ég öskra á eða tala við sjónvarpið.
 
Margur verður af aurum api... ég verð af handbolta fáviti!  Hvernig ætli Morfeusi hafi liðið? Grin

mbl.is Víða safnast saman vegna leiksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.hví þá?.

Þó menn séu alveg að missa sig í fögnuði, ég þar með talinn, þá sé ég ekki nokkra ástæðu til þess að skattpeningar fari í það að borga undir gumpinn á dömunni til þess að rápa fram og til baka til Kína eftir hennar geðþótta.  Það er ekki eins og flug og uppihald sé alveg gefins og er hún hvort eð er ekki búin að vera þarna við glyssýningu kommúnistastjórnarinnar í Kína við upphaf leikanna?!  Nærri lagi væri að eyða peningunum í handboltahreyfinguna sjálfa... nú eða bara vera ekkert að eyða þeim þar sem við erum nú þegar að eyða meira en nóg í þennan blessaða forseta og spúsu hans svo þau geti spókerað sig þarna úti fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, það mun enginn sakna þess að ráðherra íþróttamála sé ekki þarna... nema hún sjálf!

Hitt er svo annað mál að "strákarnir okkar" verðskulda svo sannarlega glæsilegar móttökur við heimkomuna!  Áfram Ísland!!!


mbl.is Þorgerður Katrín: „Ég fer út að fagna með strákunum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.æsispennandi.

Var að enda við að horfa á þennan leik og þetta var æsispennandi og skoruðu Kóreu-menn sigurmarkið úr síðasta skoti leiksins.  Ótrúlega spennandi riðill og ég er ekki að sjá að einn einasti leikur verði auðveldur fyrir okkar menn.  Sér í lagi ekki ef markvarslan er í ólagi eins og í síðasta leik.  En þá er Ísland-Þýskaland að fara að byrja...

mbl.is Suður-Kórea lagði Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.boltabull.

Það má alltaf deila um val á landsliði... en ekki nenni ég að taka þátt í slíku.  Það er nefnilega maður í vinnu við að velja í liðið og sjá um allt heila klabbið!  Það eina sem ég bíð eftir er að maðurinn sýni og sanni að hann sé rétti maðurinn í starfið...

mbl.is Jóhann Berg og Hólmar í landsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.ól á rúv.

Er það bara ég eða hefur nánast ekkert verið sýnt af Ólympíuleikunum á RÚV nema sund og fimleikar?!  Það er góðra gjalda vert að sýna frá greinum þar sem landinn keppir en ég persónulega sakna þess að sjá ekkert frá fóboltanum eða hnefaleikunum en grunar þó að fyrrnefnda íþróttin fái að gjalda fyrir að Evrópumótið sé nýbúið því það var ekki einu sinni sýnt frá leikjum sl. miðviku- og fimmtudag og frekar sjónvarpað annars ágætri stillimynd auk þess sem frekar er valið að endursýnda handboltaleik núna en að sýna fótboltann í beinni!  Ojæja, bý þó a.m.k. svo vel að hafa aðgang að BBC-stöðvunum og Eurosport svo maður eltir bara fótboltann og aðrar íþróttir þangað og lætur RÚV duga fyrir handboltann.

mbl.is Örn endaði í 35. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"skoraði í tapleik toppliðanna"

Ekki oft sem það gerist að bæði lið sama leiks tapa því eins og Adolf Ingi fræddi fólk svo skemmtilega um árið þá er það "vanalega" liðið sem skorar fleiri mörk sem sigrar... skv. fyrirsögn þessari er þetta undantekningin! Tounge

mbl.is Garðar skoraði í tapleik toppliðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.íþróttaandinn.

Rígurinn á milli þessara liða er gríðarlegur og stuðningsmenn Brøndby alræmdir í Danmörku.  Hef aftur á móti lítið heyrt nema góða hluti af stuðningsmönnum FCK til þessa.  Ég fór einmitt á fyrri leik liðanna á þjóðarleikvangnum í Parken og þar væri erfitt að sjá svona lagað koma fyrir.  Fyrir það fyrsta þá er leitað á mönnum við komuna en auk þess þá eru stuðningsmenn gestaliðsins alveg einangraðir frá öðrum áhorfendum auk þess sem þeir eru töluvert frá vellinum á bak við annað markið.  Og þar sem ég var, á meðal heimamanna voru öryggisverðir sem tryggðu það að maður væri í sínu sæti, þ.e. að maður væri ekkert að standa upp eða þvælast að óþörfu.  Það kom þó ekki í veg fyrir að stemmningin var gríðarleg á vellinum og sér í lagi var gaman að fylgjast með stuðningsmönnum Brøndby.
 
Ég fór einnig á tvo landsleiki á Parken á síðasta ári og það er óhætt að segja að stemmningin þar hafi verið sama og engin.  Fyrri leikurinn var á móti Lettlandi og þar eyddu menn um hálfum leiknum í að púa á danska liðið á hálftómum vellinum enda ljóst að liðið kæmist ekki áfram í Evrópukeppnina.  Seinni leikurinn var á móti Íslandi og þrátt fyrir að við værum um 10-20 manna hópur sem reyndum að drífa aðra landa okkar með í stemmara og stuð þá var völlurinn steindauður og leikurinn leiðinlegur eftir því... sem minnir mig á það, hef enn ekki séð skítsæmó landsleik undir stjórn núverandi landsliðsþjálfara, en það er vonandi að úr rætist og ég reynist hafa rangt fyrir mér er ég hélt því statt og stöðugt fram að næsti þjálfari ætti að koma erlendis frá til að stokka almennilega upp í þessu. 

mbl.is Neyðarblysum skotið á áhorfendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.tapsár.

Þetta er bara væll út í eitt.  Takið þessu bara eins og menn og hugið að næsta leik.  Óþarfi að ráðast á allt og alla með orðum og gjörðum þó menn tapi.

mbl.is Carlos Queiroz: Þarf kannski að skjóta einn okkar niður í teignum til að fá vítaspyrnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband