.hví þá?.

Þó menn séu alveg að missa sig í fögnuði, ég þar með talinn, þá sé ég ekki nokkra ástæðu til þess að skattpeningar fari í það að borga undir gumpinn á dömunni til þess að rápa fram og til baka til Kína eftir hennar geðþótta.  Það er ekki eins og flug og uppihald sé alveg gefins og er hún hvort eð er ekki búin að vera þarna við glyssýningu kommúnistastjórnarinnar í Kína við upphaf leikanna?!  Nærri lagi væri að eyða peningunum í handboltahreyfinguna sjálfa... nú eða bara vera ekkert að eyða þeim þar sem við erum nú þegar að eyða meira en nóg í þennan blessaða forseta og spúsu hans svo þau geti spókerað sig þarna úti fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, það mun enginn sakna þess að ráðherra íþróttamála sé ekki þarna... nema hún sjálf!

Hitt er svo annað mál að "strákarnir okkar" verðskulda svo sannarlega glæsilegar móttökur við heimkomuna!  Áfram Ísland!!!


mbl.is Þorgerður Katrín: „Ég fer út að fagna með strákunum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er náttúrlega stóra spurningin hvor hún ætli sér að káfa á strákunum eins og landnámskonan á Álftanesi, Þuríður Músarnef.

Ég vona þó innilega að Menntamálaráðherran sé í betri málum en Þuríður Músarnef og þurfi ekki að fitla við strákana.

Jón Garðar (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 14:58

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er dedd á því að Íslenskir ráðamenn eigi ekki að vera í Kína.

Algjörlega út í hött að leggja blessun sína yfir stefnu stjórnvarlda í þessu fasistaríki með því að taka í hrammana á þessu pakki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.8.2008 kl. 15:09

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

ah loksins einhver sem segir eitthvað að viti í dag:)

annars þá er það stefna hjá fjölmiðlum að þagga algerlega niður það að um 140 Tíbetar voru myrtir af kínverska hernum þann 18. ágúst og ekkert hefur gengið að fá neina umfjöllun hjá rúv um Raddir fyrir Tíbet sem verður á sunnudagskvöldið. Hvet þig til að kíkja á hvað forsetinn talaði um við forseta kína í dag. Hægt að sjá herlegheitin á forseti.is....

Birgitta Jónsdóttir, 22.8.2008 kl. 17:38

4 Smámynd: Lady Elín

Vel mælt!

Lady Elín, 22.8.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband