.landafræðin.
28.8.2008 | 20:45
Landafræðin er allajafna bara ekki betri hjá Kananum en að þeir haldi Ísland bæ í Bandaríkjunum eða Kanada. Þegar ég var í Los Angeles á sínum tíma þá var ég ósjaldan spurður "Did you come driving?" er ég sagðist vera frá Íslandi. Best var það þó er ég lenti í rökræðum um staðsetningu stormskersins okkar! Kaninn hélt því statt og stöðugt fram að landið væri rétt hjá Ítalíu. Ég skildi ekki með nokkru móti hvernig hann fékk það út, þar til ég fékk hann til að hripa upp grófa útgáfu af hans Evrópu. Þar tróndi ríkið Skandinavía efst á blaði, því næst kom landið París og neðst kom svo téð Ítalía. Einhvers staðar þarna á milli tveggja síðastnefndu "landanna" hafði hann svo troðið Íslandi! 

|
Unnu Bandaríkjamenn silfrið? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Spaugilegt | Facebook


Athugasemdir
Flestir halda að Ísland sé í Alaska HAHAHAHA
Ómar Ingi Friðleifsson , 28.8.2008 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.