.fussss.

Lið verða nú ekki stórveldi þó einhverjir millaplebbar fari að leika sér í Football Manager með alvöru lið. Það er nú lágmark að menn vinni einhverja titla fyrst og komi sér upp titlasögu... mörgum finnst ekki einu sinni Chelsea geta flokkast sem stórveldi!  Cool  

En annars þá held ég að það sé klárlega kominn tími á launaþak eða annað slíkt í boltanum sem heftir svona fíflaskap og jafnar aðeins samkeppnina.  Það er nefnilega mun skemmtilegra að sjá hæfileika blómstra frekar en að einhverjir lúðar í pissukeppni geti keypt sér titla.  Nema auðvitað að einhver millinn taki ÍR undir sinn verndarvæng! Wink


mbl.is Al-Fahim ætlar sér stóra hluti hjá City
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Heiðar Guðmundsson

Ef launaþak kæmi á núna þá myndi Manchester United og chelsea lenda í vandræðum ekki city.

Þröstur Heiðar Guðmundsson, 4.9.2008 kl. 11:27

2 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Eru lið stórveldi ef það vinnur ekki deildina í sínu landi svo áratugum skiptir?

Þá kemur, hei 18 titlar......

Á þá að tala um fyrrum stórveldi? Eins og Notts County og Nott Forrest?

Þórður Helgi Þórðarson, 4.9.2008 kl. 13:18

3 Smámynd: Ómar Ingi Friðleifsson

Nú geturðu Hatað 2 lið

Ómar Ingi Friðleifsson , 4.9.2008 kl. 16:43

4 Smámynd: ...désú

Ég persónulega er með svæsið óþol gagnvart nokkrum liðum (svo sem Manjún t.d.) en hef þó minnst álit á liðum eins og Chelsea og nú Man. City (sem gárungarnir kalla ósjaldan Chel$ki og $hitty einhverra hluta vegna ).  Maður ber vissa virðingu fyrir uppbyggingarstarfsemi þar sem menn hafa með þolinmæði og vinnu náð að byggja upp gott lið.  Svo koma einhverjir gaurar með lítil typpi og stór veski og gjörbreyta leikreglunum og kaupa sér einfaldlega titla!

Ég vil alveg hiklaust sjá launaþak eða að lið megi ekki vera rekin með tapi sem og klásúlu um innfædda spilara... fokk ðí fokkíng monnímen og fokk Evrópusambandið sem stendur á móti reglugerðum um kvóta á erlenda leikmenn! Og hananú!

...désú, 4.9.2008 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og þremur?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband